- Kt. 551200-2130
- Neyðarnúmer varahluta: 775 6134 (15. júní til 30. ágúst) - Gjaldskylt
- landstolpi@landstolpi.is
Í janúar sl. fór Landstólpi ehf. fram á lögbann um að Landstólpum þróunarfélagi ehf. yrði gert að skipta um nafn til að fyrirbyggja óþægindi og tjón vegna nafnaruglings þessara tveggja félaga.
Hefur fyrirtækið Landstólpi ehf. unnið að því í tæplega tvö ár að fá nafngift Landstólpa þróunarfélags ehf. breytt enda hefur Landstólpi ehf. orðið fyrir verulegum óþægindum, tjóni og neikvæðri umræðu í fjölmiðlum, byggt á þessum nafnamisskilningi.
Í þessi tvö ár hefur Landstólpi ehf. leitað leiða til að fá einkarétt sinn virtan á vörumerkinu Landstólpa. Fyrst var leitað eftir afstöðu Fyrirtækjaskráar RSK og síðar Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Þrátt fyrir skráð vörumerki hjá Einkaleyfastofu höfnuðu bæði Fyrirtækjaskrá og ráðuneytið beiðni Landstólpa ehf. um að virða rétt þess á nafnanotkuninni. Voru rökin fyrir höfnun þau helstu að Landstólpi væri almennt orð og að félögin tvö störfuð ekki á sama sviði né á sama svæði. Þau rök standast þó ekki skoðun þar sem bæði félögin eru í bygginga- og verktakastarfsemi og starfsvæði Landstólpa ehf. er um allt land.
Landstólpi ehf. sá sig því knúið til að fara fram á lögbannsbeiðni á nafngift hins félagsins. Í því ferli ákvað félagið Landstólpar þróunarfélag ehf. að verða við beiðni Landstólpa ehf. og hefur skipt um nafn. Félagið heitir nú Reykjavík Development ehf.
Þar með lýkur tæplega tveggja ára baráttu Landstólpa ehf. til að fyrirbyggja frekara tjón og misskilning á nafnanotkuninni.
Við getum því haldið ótrauð áfram að nota nafn okkar enda annt um 15 ára gott orðspor.