Framúrskarandi fyrirtæki

Landstólpi ehf. hefur verið valið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi 2015 og er því á meðal þeirra fyrirtækja sem efla íslenskt efnahagslíf. Einungis um 1,9% íslenskra fyrirtækja uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um fjárhagslegan styrk og stöðugleika.

 Það er mikils virði fyrir Landstólpa að tilheyra þessum hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi. Þetta er viðurkenning fyrir fyrirtækið og starfsmenn þess um góðan árangur. Við munum áfram hafa það að markmiði að bæta okkur enn frekar.