Giant liðléttingur

Nýr Giant D337T HD var afhentur í gær á Gunnlaugsstöðum í Borgarfirði. Liðléttingurinn er 33 hestafla vél með sjálfvirkri driflæsingu á báðum öxlum. Vélin er einstaklega góð og með frábæra lyftigetu. Við óskum Gunnlaugsstaðabændum til hamingju með nýja risann sinn og vonum að hann nýtist vel.