Hágæða gæludýrafóður

Landstólpi kynnir með stolti gæða fóður fyrir hunda og ketti frá þýska fyrirtækinu Josera. sem hefur í yfir 65 ár framleitt dýrafóður.
Við þróun gæludýrafóðursins fékk Josera í lið með sér fóðurfræðinga og dýralækna til að útkoman væri gæða fóður sem fullnægði þörfum gæludýranna.
Í gæludýrafóðrið eru einungis notaðar hágæða vörur sem þurfa að undirgangast strangar gæðakröfur. Nú er því lag fyrir ræktendur sem og aðra velunnara að kynna sér þennan nýja valkost
Josera notar ekki hveiti, soja, mjólkurvörur eða sykur í gæludýrafóðrið
Gæludýrafóðrið er framleitt án gervi-, litar-, bragð- og rotvarnarefna.