Josera gæludýrafóður

Þann 19. ágúst næstkomandi verður haldin ráðstefna á Grand Hótel í Reykjavík fyrir ræktendur og aðra áhugasama frá kl. 20-22. Thomas Krack sérfræðingur á gæludýrasviði Josera í Þýskalandi mætir og verður með spennandi kynningu á gæludýrafóðri. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Skráning á ráðstefnuna og frekari upplýsingar fást með tölvupósti á kristjana@landstolpi.is. Takmarkaður sætafjöldi er í boði. 

 

Þennan sama dag frá kl. 16-18 verður einnig kynning fyrir verslanir og endursöluaðila, skráning fer fram á kristjana@landstolpi.is.

 

Hlökkum til að sjá ykkur.