- Kt. 551200-2130
- Neyðarnúmer varahluta: 775 6134 (15. júní til 30. ágúst) - Gjaldskylt
- landstolpi@landstolpi.is
Síðastliðið haust var stofnað kvennalið innan körfuknattleiksdeildar FSU og kepptu þær í fyrstu deild kvenna síðastliðið tímabil. Árangurinn lét ekki á sér standa og enduðu þær í 5 sæti sem er nokkuð gott miðað við nýstofnað lið.
Josera styrkti stelpurnar að sjálfsögðu enda þurfa íþróttamenn hágæða fæði.
Landstólpi vill óska stelpunum til hamingju með árangurinn á síðustu leiktíð og velfarnaðar á komandi árum.