- Kt. 551200-2130
- Neyðarnúmer varahluta: 775 6134 (15. júní til 30. ágúst) - Gjaldskylt
- landstolpi@landstolpi.is
Sýningin Íslenskur landbúnaður 2018 verður haldin í Laugardalshöll um helgina, 12-14. október næstkomandi.
Að sjálfsögðu verður Landstólpi þar og hlökkum við til að hitta sem flesta og kynna vörur okkar og framleiðslu.
Síðustu dagar hafa farið í skipulagningu og undirbúning á svæði Landstólpa og er það von okkar að svæðið verði bæði áhugavert, skemmtilegt og fræðandi.
Við ætlum ma. að vera með Fullwood Merlin mjaltaþjón, innréttingar, dýnur ofl. í gripahús en einfaldlega er sjón sögu ríkar :)
Opnunartími sýningar er:
föstudagur 12. október 14:00-19:00
laugardagur 13. október 10:00-18:00
sunnudagur 14. október 10:00-17:00
Hér má nálgast tímarit sýningarinnar þar sem er ma. að finna dagskrá yfir fyrirlestra og fræðslu, yfirlit yfir sýningarsvæði og fleira. Bendum sérstaklega á blaðsíðu 88 í ritinu en okkur finnst hún sérlega áhugaverð.
Einnig er bent á fésbókarsíðu sýningarinnar til frekari fróðleiks.
Verið velkomin á svæði Landstólpa og vonum að við sjáum sem flesta