Ný staðsetning - Lyngás 11

Búðin okkar á Egilsstöðum er nú flutt í nýtt húsnæði að Lyngási 11 á Egilsstöðum. 

Við erum afar stolt af breytingum sem að gerðar voru áður en að við fluttum í nýja húsnæðið. 

Mjög gaman að geta nú boðið ykkur í stærri búð með meira vöruúrvali. 

Opnunartíminn er eftirfarandi: 

  • Alla virka daga frá kl. 9-17
  • Laugardaga frá kl. 10-14

Við erum í skýjunum yfir góðum viðtökum og hlökkum til komandi viðskipta í framtíðinni!

Verið velkomin í heimsókn og hún Kristjana sér til þess að alltaf er heitt á könnunni.