Minnum á bændakaffi á morgun kl. 10-11

Á morgun, föstudaginn 17. mars viljum við gjarnan fá sem flesta í kaffi til okkar  – og ekki bara bændur 

Endilega kíkið við í höfðustöðvar okkar að Gunnbjarnarholti milli 10 og 11 í fyrramálið.  Heitt kaffi verður á könnunni og kleinur og rúnstykki. 
Sáðvörulistinn fyrir sumarið verður lagður fram og gefst tækifæri til að spyrja og fræðast um tegundir, mismun þeirra og nýjungar. 
Allir hjartanlega velkomnir  – en fyrst og síðast hlökkum við til að sjá sem flesta og eiga saman notalega morgunstund.