Ný kæligeymsla hjá Eimskip tekin í notkun

Landstólpi ehf. óskar Eimskip til hamingju með nýju kæligeymsluna sem nú hefur verið tekin í notkun og leið og við þökkum fyrir mjög góð samskipti við alla aðila er komu að verkinu.

Það er jafnframt gaman frá því að segja að um er að ræða fyrstu kæligeymsluna sem Landstólpi hefur reist og tókst verkið í alla staði mjög vel.

Einungis liðu 42 dagar frá því að húsið kom til landsins og keyrðar voru inn í það fyrstu vörunnar – og þrátt fyrir að vera ríflega 1000 m2 að stærð! Við hjá Landstólpa þökkum það góðum undirbúningi og skipulagningu allra aðila en fyrst og síðast þökkum við okkar frábæra gengi á byggingarsviði þennan kraft og dugnað- svona á að reisa hús :)

Það þarf varla að taka það fram hvað byggingartími skiptir miklu máli fyrir kaupendur. Við hjá Landstólpa erum stolt af því að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á slíka þjónustu sem er ómetanlegt hagræði fyrir kaupendur hverju sinni.

Að lokum – Til hamingju Eimskip og ,,það var lagið drengir“ til útigengisins okkar!