Sáðvörur 2016

Viljum vekja athygli á sáðvörulistanum fyrir 2016 sem er að finna hér á heimasíðunni. 

Sérstaklega bendum við á nýjung á íslenskum sáðvörumarkaði – hestabaunir! 

Hestabaunir (vicia faba) eru ríkar af próteini, um 30%, og henta vel fyrir allar tegundir búfjár. Auk þess að vera góður próteingjafi í fóðri eru þær líka jarðvegsbætandi þar sem þær binda köfnunarefni í jarðvegi.

Hestabaunir henta mjög vel við íslenskar aðstæður. Þær þola vel rigningar og eru harðar af sér við kaldar og rakar aðstæður. 

Hafið samband við við sölumenn til frekari upplýsinga varðandi sáðvöruna.