Þakkir!

Nú af nýafstaðinni sýningu ,,Verk og Vit“ í Laugardalshöll, er þakklæti okkur efst í  huga.

Sýningin tókst í alla staði mjög vel og eiga skipuleggjendur hennar þakkir skildar.

Við erum þó fyrst og fremst ánægð með þann mikla fjölda gesta sem heimsóttu bás okkar og gáfu sér tíma til að fræðast um starfsemina. Skemmtilegt andrúmsloft og jákvæðni allra gerði það að verkum að helgin leið eins og hendi væri veifað. Við vonum einnig að gestir okkar hafi upplifað það sama.

Viðbrögð ykkar fóru langt fram úr væntingum okkar – hafið kæra þökk fyrir!